Körfubolti

Dallas lagði Sacramento án Dirk Nowitzki

Marcus Camby átti stórleik fyrir Denver í góðum sigri á Lakers í nótt. Hann skoraði 21 stig, hirti 20 fráköst og varði 6 skot
Marcus Camby átti stórleik fyrir Denver í góðum sigri á Lakers í nótt. Hann skoraði 21 stig, hirti 20 fráköst og varði 6 skot NordicPhotos/GettyImages

Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt, en nú er farið að styttast í að úrslitakeppnin hefjist og línur farnar að skýrast með uppröðun liða í Austur- og Vesturdeildinni.

Detroit lagði Indiana auðveldlega á útivelli 100-85 og tryggði þar með Indiana fyrsta keppnistímabilið í áratug með lakari árangur en 50% vinningshlutfall. Tayshaun Prince skoraði 24 stig fyrir Detroit en Jermaine O´Neal skoraði 20 fyrir Indiana.

Charlotte vann góðan sigur á Washington 122-100 og fyrir vikið missti Washington efsta sætið í Suðausturriðlinum í hendur Miami. Gerald Wallace var frábær í liði Charlotte og skoraði 31 stig og hirti 14 fráköst en Gilbert Arenas skoraði 33 stig fyrir Washington.

Miami vann á sama tíma góðan sigur á Toronto á heimavelli 92-89 þar sem Shaquille O´Neal og Udonis Haslem skoruðu 16 stig hvor. Chris Bosh skoraði 24 stig fyrir Toronto.

New Orleans vann meiðslum hrjáð lið Milwaukee 119-101 á útivelli. David West skoraði 24 stig fyrir New Orleans en Michael Redd 27 fyrir Milwaukee.

LeBron James sneri aftur með Cleveland eftir hnémeiðsli og skorði 31 stig og hirti 12 fráköst í öruggum útisigri liðsins á Minnesota 101-88. Kevin Garnett skoraði 22 stig og hirti 12 fráköst fyrir heimamenn.

San Antonio lagði Seattle 110-91 og vann þar með alla leiki liðanna í vetur. Bruce Bowen skoraði 18 stig fyrir San Antonio en Chris Wilcox var með 20 stig fyrir Seattle.

Phoenix lagði Memphis á útivelli í beinni á NBA TV 116-111 í fjörugum leik. Amare Stoudemire skoraði 27 stig fyrir Phoenix og Steve Nash hitti öllum skotum sínum, skoraði 15 stig og gaf 17 stoðsendingar. Pau Gasol skoraði 23 stig fyrir heimamenn.

Dallas lagði Sacramento 97-93 á útivelli án Dirk Nowitzki. Josh Howard skoraði 29 stig fyrir Dallas en Ron Artest var með 25 stig og hirti 10 fráköst fyrir Sacramento.

Loks vann Denver góðan útisigur á LA Lakers 111-105. Carmelo Anthony skoraði 31 stig fyrir Denver, Marcus Camby skoraði 21 stig og hirti 20 fráköst og Allen Iverson var með 20 stig og 10 stoðsendingar. Kobe Bryant skoraði 39 stig fyrir Lakers og Lamar Odom var með þrefalda tvennu - 17 stig, 14 fráköst og 12 stoðsendingar.

Staðan í NBA: (y=sigur í riðli, x=tryggt sæti í úrslitakeppni)

Austurdeild:

ATLANTIC

1.     x-TOR     41-33      

2.     NJN     34-39      

3.     NYK     31-42      

4.     PHI     29-44      

5.     BOS     23-50      

SOUTHWEST

1.     x-DAL     62-12      

2.     x-SAS     53-21      

3.     x-HOU     47-27      

4.     NOR     34-40      

5.     MEM     19-57      

CENTRAL

1.     x-DET     48-26      

2.     x-CLE     45-30      

3.     x-CHI     44-31      

4.     IND     32-42      

5.     MIL     25-48

Vesturdeild:

NORTHWEST

1.     y-UTH     48-25      

2.     DEN     37-36      

3.     MIN     31-43      

4.     SEA     30-44      

5.     POR     29-44      

SOUTHEAST

1.     MIA     40-34      

2.     WAS     39-34      

3.     ORL     34-40      

4.     CHA     29-46      

5.     ATL     27-47      

PACIFIC

1.     y-PHO     56-18      

2.     LAL     39-35      

3.     LAC     36-37      

4.     GSW     35-39      

5.     SAC     30-43     

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×