Detroit í góðri stöðu í Austurdeildinni 9. apríl 2007 11:05 Racheed Wallace og félagar í Detroit eru besta liðið í Austurdeildinni í vetur. MYND/Getty
Detroit vantar aðeins einn sigurleik til þess að tryggja sér heimavallarréttinn í úrslitakeppni Austurdeildar NBA-deildarinnar og þarf liðið nú aðeins einn sigur til viðbótar til að ná þeim áfanga. Liðið vann mikilvægan sigur á Cleveland í nótt, 87-82, þar sem góður varnarleikur á LeBron James lagði grunninn að úrslitunum. LeBron skoraði "ekki nema" 20 stig í leiknum, en hittni hans var ekki góð auk þess sem hann tapaði boltanum fimm sinnum. Leikmenn Detroit tvídekkuðu hann í hvert sinn sem tækifæri gafst og þvinguðu þannig minni spámenn Cleveland til að taka ábyrgð í sóknarleiknum. Þá ábyrgð réðu þeir ekki við. Richard Hamilton skoraði 21 stig fyrir Detroit og Antonio McDyess skoraði 18 stig og tók 13 fráköst. Kobe Bryant skoraði 34 stig og gaf sjö stoðsendingar fyrir LA Lakers gegn Phoenix í nótt, en sú frammistaða dugði þó ekki til sigurs gegn Steve Nash og félögum. Phoenix sigraði með 115 stigum gegn 107 og skoraði Nash 25 stig auk þess sem hann gaf 11 stoðsendingar. Meistarar Miami töpuðu fyrir Charlotte, 111-103, í leik sem markaði endurkomu stjörnuleikmannsins Dwayne Wade. Hann var þó aðeins skugginn af sjálfum sér eftir að hafa farið úr axlarlið fyrir nokkrum vikum en skoraði þó 12 stig og gaf 8 stoðsendingar á 27 mínútum. Alonzo Mourning var stigahæstur hjá Miami með 20 stig en hjá Charlotte skoraði Gerald Wallace 30 stig. Toronto lagði Chicago af velli, 103-89, og á enn möguleika á að stela 2. sætinu í Austurdeildinni af Chicago. Ben Gordon skoraði 27 stig fyrir Chicago en Anthony Parker var með 27 stig fyrir Toronto. Philadelphia lagði Atlanta, 109-104, og þá vann Houston góðan sigur á Sacramento, 112-106, þar sem Tracy McGrady var í miklu stuði og skoraði 40 stig.
NBA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira