Innlent

Líðan mæðginanna eftir atvikum

Líðan mæðginanna sem lentu í vélsleðaslysinu í Grenjaárdal ofan Grenivíkur í gær er eftir atvikum. Bæði beinbrotnuðu en meiðsl þeirra eru þó ekki alvarleg. Mæðginin misstu stjórn á sleðanum sem valt yfir þau.

Björgunarsveitarmenn frá Grenivík og Akureyri, sjúkraflutningamenn og lögregla frá Akureyri fóru á staðinn. Fólk á vettvangi kom mæðginunum til aðstoðar og hlúði að þeim þar til björgunaraðilar komu á staðinn. Þau voru flutt með snjótroðara af slysstað niður til Grenivíkur. Þar beið sjúkrabifreið eftir þeim og flutti þau á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×