Leikjavísir

Sony hættir að selja ódýrari PS3 tölvuna

Fall of Man er einn þeirra tölvuleikja sem hægt er að spila í mikilli upplaun á PS3.
Fall of Man er einn þeirra tölvuleikja sem hægt er að spila í mikilli upplaun á PS3.

Sony í Bandaríkjunum hefur ákveðið að hætta sölu á 20 gígabita Playstation 3 tölvum. Í ljós hefur komið að öflugri og dýrari 60 gb leikjatölvurnar eru mun vinsælli, þrátt fyrir verðmuninn. Einungis dýrari útgáfan hefur verið seld í Evrópu.

Dýrari útgáfan af Playstation 3 er með búnað til að tengjast netinu og lesa minnistkort. Í Bandaríkjunum kostar hún 599 dali (39.000 kr) en sú ódýrari var seld á 499 dali (32.000 kr). Hér á landi kostar dýrari útgáfan af Playstation 3 milli 65 og 70 þúsund krónur.

Breska dagblaðið Guardian segir að áhuginn á dýrari útgáfunni hafi reynst svo mikill í Bandaríkjunum að níu slíkar tölvur hafa verið seldar fyrir hverja eina af ódýrari gerðinni. Í Japan verða ódýrari tölvurnar áfram til sölu.

Playstation 3 er í mikilli samkeppni við Nintendo Wii og Xbox 360 á alþjóðlegum markaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.