Sport

Mayweather vann nauman sigur á De la Hoya

Mayweather getur hætt sáttur eftir sigurinn á De la Hoya
Mayweather getur hætt sáttur eftir sigurinn á De la Hoya NordicPhotos/GettyImages

Floyd Mayweather stóð við stóru orðin í nótt þegar hann sigraði Oscar de la Hoya naumlega á stigum í bardaga þeirra um WBC titilinn í léttmillivigt. Ekkert varð þó úr barsmíðunum sem Mayweather var búinn að lofa, því De la Hoya barðist hetjulega og veitti andstæðingi sínum góða keppni.

De la Hoya hafði yfirburði í fyrstu lotunum, en það var fyrst og fremst hraði Mayweather sem tryggði honum sigurinn. Hann lýsti því yfir fyrir bardagann að einvígið við De la Hoya yrði hans síðasti á ferlinum, en þetta var fyrsti bardagi Mayweather í þessum þyngdarflokki. Hann er sexfaldur heimsmeistari í fimm þyngdarflokkum.

Tveir dómarar dæmdu bardagann Mayweather í vil 116-112 og 115-113, en sá þriðji dæmdi hann 115-113 fyrir De la Hoya. Bubbi Morthens vildi einnig meina að De la Hoya hefði átt að vinna, en þess má geta að sérfræðingar ESPN sjónvarpsstöðvarinnar og Associated Press dæmdu bardagann 116-112 Mayweather í vil.

Mayweather ítrekaði að hann ætlaði að hætta í viðtali eftir bardagann en De la Hoya segist ætla að skoða bardagann aftur og hugsa áframhaldið í rólegheitunum. Hann tók tapinu af einstakri prúðmennsku og auðmýkt eins og hans er von og vísa. Þetta var fimmta tap De la Hoya á ferlinum í 43 bardögum en Mayweather sest nú í helgan stein taplaus í 38 viðureignum. De la Hoya fékk að minnsta kosti 25 milljónir dollara fyrir bardagann og Mayweather 10 - og borguðu áhorfendur í Las Vegas margir hverjir upp í 2000 dollara fyrir góð sæti.

 

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×