Tónlist

Fnykur

Þann 18. maí n.k kemur út hljómplatan Fnykur með Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar. Sama dag heldur Stórsveit Samúels útgáfutónleika á tónlistarhátíðinni Vorblóti "Rite of Spring" á Nasa sem fram fer á vegum Hr. Örlygs dagana 17.-19. maí.

Tónlistin á plötunni er öll eftir Samúel en hann hlaut árið 2005 starfslaun listamanna til að semja tónlistardagskrá fyrir Stórsveit. Tónlistin var frumflutt af Stórsveit Reykjavíkur á tónleikum 1. febrúar 2006. Verharður Linnet sagði í dómi sínum um tónleikana í Morgunblaðinu 12. febrúar 2006 :

"Stórsveitarfönk af bestu sort"

"Segja má að Samúel Jón hafi komið, séð og sigrað er hann stjórnaði Stórsveit Reykjavíkur í tíu verkum sínum, nær öllum nýjum af nálinni… …vonandi verður tónlistin gefin út á geislaplötu."

Draumur Vernharðs hefur nú ræst. Platan var hljóðrituð í hljóðverinu Heita Pottinum í mars og apríl af Gunnari Erni Tynes. Það er Sjs musik sem gefur plötuna út en henni er dreift af smekkleysu.

Fnykur er að sögn Samúels það íslenska orð sem kemst næst enska orðinu "Funk"

Samkvæmt Íslenskri orðabók þýðir orðið fnykur fýla, ódaunn eða vond lykt. Það samræmist enska orðinu "funk" sem upprunalega var notað yfir slæma lykt, einkum líkams lykt eða svitalykt samanber enska orðatiltakið "there´s something funky going on in here" sem gæti útlegst á ísllensku, "það er fnykur af þessu" í stóru orðabókinni eftir Hilmar Jón jónsson segir að orðið fnykur þýði vond lykt "-já þetta er ljóti fnykurinn"

 

 

Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar skipa þeir:

 

Haukur Gröndal - alto saxófónn

Ingimar Andersen - alto saxófónn

Jóel Pálsson - tenor saxófónn

Steinar Sigurðarson - tenor saxófónn

Óskar Guðjónsson - bariton saxofónn

 

Kjartan Hákonarson - trompet

Eiríkur Orri Ólafsson - trompet

Snorri Sigurðarson - trompet

Ari Bragi Kárason - trompet

 

Samúel Jón Samúelsson - básúna

Kári Hólmar Ragnarsson - básúna

Finnur Ragnarsson - básúna

Leifur Jónsson - básúna

 

Davíð Þór Jónsson - Hljómborð

Ómar Guðjónsson - gítar

Ingi Skúlason - bassi

Helgi Svavar Helgason - trommur



Um Samúel

Samúel var 14 ára er hann hóf leik í Léttsveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur undir stjórn Sæbjörns Jónssonar. Árið 1991 hóf Samúel nám við Tónlistarskóla FíH og lék hann með stórsveit skólans til fjölda ára. Árið 2000 stofnaði Samúel eigin Stórsveit sem kom fram á útskritartónleikum hans. Sveitin lék eingöngu efni eftir Samúel. Það sama ár kom út hljómplatan Legoland og sveitin lék á Jazzhátíð Reykjavíkur. Síðan þá hefur Hljómsveitin legið í dvala. 2004 útsetti Samúel tónlist Tómasar R. Einarssonar fyrir tónleika á Listahátíð í Reykjavík. Um flutning sá hljómsveitin Jagúar í nk stórsveitarbúningi. Haustið 2004 voru tónleikarnir gefnir út á hljómplötunni "Dansaðu Fíflið Þitt Dansaðu!" . Platan fékk 3 verðlaun á Íslenku tónlistarverðlaununum. Samúel hefur starfað með Stórsveit Reykjavíkur bæði sem básúnuleikari, útsetjari og Stjórnandi. Haustið 2006 kom kom út hljómplatan "Majones Jól" með Stórsveit Reykjavíkur og Bogomil Font en Samúel útsetti meirihlutan plötunar ásamt því að stjórna sveitinni. Þá stjórnaði Samúel Stórsveit Reykjavíkur við afhendingu Íslensku Tónlistarverðlaunanna í janúar 2007 ásamt því að útsetja fyrir Stórsveitina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×