Innlent

Hafna beiðni Guðmundar um að stofna lögbýli í frístundabyggð

Hreppsnefnd Grímsnes- og Grafningshrepps hafnaði í síðust viku beiðni Guðmundar í Byrginu um að fá að stofna lögbýli á lóðum sínum í hreppnum. Svæðið er nú frístundabyggð og samanstendur af sex frístundahúsalóðum.

Óskað var eftir því að svæðið yrði gert að tveimur nýjum lögbýlum en því var hafnað. Hefði svæðið verði gert að lögbýli hefði það þýtt að fleiri hús hefðu mátt standa þar og íbúarnir meðal annars fengið skólaakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×