Fjórir létu lífið og tíu særðust þegar ísraelskar herþotur héldu áfram loftárásum á Gasa í morgun. Ísraelar segja árásirnar svar við ítrekuðum flugskeytaárásum yfir landamærin. Ísraelskar hersveitir réðust einnig inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa.
Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem Ísraelar handtaka palestínskan ráðherra. Í fyrradag var menntamálaráðherrann tekinn höndum ásamt tugum háttsettra liðsmanna Hamas.