Tónlist

Kryddpíur á leynifundi

Að snúa Aftur?  Endurkoma Spice Girls myndi vekja gríðarlega athygli.
Að snúa Aftur? Endurkoma Spice Girls myndi vekja gríðarlega athygli.

Orðrómurinn um að stúlkurnar í Spice Girls ætli að koma saman á ný fékk byr undir báða vængi í gær þegar sást til þeirra Geri Halliwell og Emmu Bunton yfirgefa heimili Richards Stannard í Brighton, en hann var helsti upptökustjóri hljómsveitarinnar þegar hún var sem vinsælust.

Hugsanleg endurkoma Kryddpíanna á tónlistarsviðið hefur lengi verið í umræðunni en stelpurnar hafa ekki sungið saman síðan árið 2001. Fjölmiðlar í Bretlandi segjast hafa heimildir fyrir því að Mel C hafi einnig verið á þessum meinta fundi, en Victoria Beckham ku ekki hafa verið boðuð enda upptekin við að undirbúa flutning fjölskyldu sinnar frá Madrid til Los Angeles.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.