Innlent

Fótbrutu samfanga á Litla Hrauni

Nokkrir fangar á Litla Hrauni gengu í skrokk á samfanga sínum í vikunni og fótbrutu hann. Að sögn Morgunblaðsins er brotið það slæmt að fanginn þarf að gangast undir aðgerð á bæklunardeild Landsspítalans í dag. Ekki segir nánar af tilefni árásarinnar eða afdrifum árásarmannanna, en lögreglurannsókn stendur yfir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×