Bíó og sjónvarp

Leo vill vera Hefner

Leonardo DiCaprio
Leonardo DiCaprio MYND/Getty

Þær gerast nú enn háværari raddirnar sem segja að Leonardo DiCaprio muni leika félaga sinn Hugh Hefner í væntanlegri kvikmynd um líf Playboymógúlsins.

Leonardo er góður vinur Hefner og sækir samkvæmi hans í Payboysetrinu reglulega. Vitnað er í nafnlausa heimild sem segir: „Þeir hafa verið vinir lengi og Leo hefur alltaf haft áhuga á lífi Hefner sem hann telur að gæti orðið frábær bíómynd. Hefner er hrifinn af hugmyndinni en setur eitt skilyrði - að hann verði á lífi til að sjá myndina."

Hugh Hefner er orðinn 81 árs gamall þannig að tíminn vinnur ekki beinlínis með þeim félögum.

Leonardo DiCaprio er alvanur að leika í myndum sem fjalla um ævi manna. Skemmst er að minnast Howard Hughes sem hann lék í Aviator og Frank Abagnale sem hann lék í Catch me if you can.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×