Innlent

Verða að taka spaðana af TF Sif

TF Sif á flugi.
TF Sif á flugi. MYND/365

Taka verður spaðana af TF Sif til að hægt verði að snúa vélinni við þar sem hún liggur á hvolfi í sjónum samkvæmt upplýsingum Vísis. Kafarar eru nú á leiðinni til að meta aðstæður og finna út hvernig best er að hífa þyrluna upp úr sjónum.

Gerð verður tilraun til að hífa þyrluna upp úr sjónum í kvöld og er vinnupramminn Fjölvi á leiðinni til að sinna því verki. Um borð í prammanum eru einnig fimm kafarar sem hafa það hlutverk að meta aðstæður á slysstað. Samkvæmt upplýsingum Vísis þykir afar líklegt að fjarlægja verði þyrluspaðana af TF Sif til að hægt verði að snúa vélinni við.

Ekki liggur fyrir hvað olli því að þyrlan missti afl þegar hún var við æfingar rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Flugslysanefnd er nú á staðnum að rannsaka málið.


Tengdar fréttir

TF Sif líklega ónýt

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að TF Sif sé að öllum líkindum ónýt. Hann segist þegar vera búinn að gera ráðstafanir til að útvega nýja þyrlu. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir mikil mildi að enginn hafi slasast.

Búið að bjarga mönnunum fjórum sem voru um borð í TF Sif

Búið er að bjarga mönnunum fjórum sem voru um borð í TF Sif þegar hún féll í sjóinn. Mennirnir eru allir heilir á húfi og ómeiddir samkvæmt heimildum Vísis. Þyrlan var á æfingu með björgunarsveit Hafnarfjarðar þegar slysið varð.

Áhöfn slapp ómeidd eftir að TF Sif féll í sjóinn

TF Sif, þyrla Landhelgisgæslunnar, féll í sjóinn mitt á milli Straumsvíkur og Hafnarfjarðarhafnar um klukkan sjö í kvöld. Fjórir menn voru um borð en þeir sluppu allir ómeiddir. Þyrlan er enn á floti í sjónum og reynt verður að hífa hana upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×