Viðskipti erlent

Vestræn risapanda reynist ansi arðbær

Oddur S. Báruson skrifar
Hvolparnir tveir
Hvolparnir tveir MYND/Reuters

Risapandan Huamei eignaðist sitt þriðja par af tvíburum á dögunum. Huamei er óvenjuleg panda að því leyti að hún fæddist og komst á legg í vestrænu samfélagi, óravegu frá náttúrulegum heimkynnum panda í Asíu. Hún fæddist í Bandaríkjunum fyrir átta árum. Nafn hennar er blanda af orðunum Kína og Ameríka. Reuters greinir frá þessu.

 

Huamei var flutt til Kína árið 2004. Hún hefur eignast þrjú pör af hvolpum síðan þá. Nú dvelur pandan á rannsóknarstofu í suðurhluta landsins Þar sem hún er skoðuð og hlúið er að henni, en frjósamar pöndur eins og hún eru afar fátíðar og ávalt tekið fegins hendi.

Risapöndur eru í mikilli útrýmingarhættu. Um 1600 risapöndu lifa villtar í Kína. Ástand stofnsins er að stóru leyti rakið til leti panda. Þær eyða drjúgum hluta sólahringsins sofandi. Utan þess hanga þær aðallega uppi tré og bryðja bambus.

Hvolparnir tveir vega um 130 grömm hvor. Þeir fæddust með þriggja klukkustunda millibili. Þeim og móðurinni heilsast vel.

Huamei á sínu fjórða aldursári, stuttu eftir komuna til Kína
.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×