Golf

Harrington hefði líklega hætt í golfi ef hann hefði ekki unnið Opna breska

NordicPhotos/GettyImages

Írinn Padraig Harrington sigraði 136. Opna breska meistaramótið um helgina þegar hann vann Sergio Garcia í fjögurra holu umspili eftir einna mest spennandi lokaholur síðustu ára. Þar með vann hann sinn fyrsta risatitil þó að hann hafi gert mikil mistök á síðustu holunni þegar hann sló tvisvar í lækinn, Barry Burn, sem farið var að minna óþægilega mikið á mótið frá árinu 1999 þegar Frakkinn Van de Velde tapaði mótinu svo eftirminnilega.

Harrington fór upp í 6. sæti heimslistans eftir hinn frækilega sigur um helgina og jafnaði þar með besta áranguir sinn á listanum. Garcia fór einnig inn á topp 10 listann, er núna kominn í 8. sætið.

Harrington fékk sex högg á síðustu holuna og með því átti Spánverjinn Garcia möguleika á því að vinna mótið með því að fá par á síðustu.

En Spánverjinn sem var með þriggja högga forystu fyrir síðasta hringinn fékk skolla og tapaði svo með einu höggi í umspili.

Harrington er fyrsti Evrópumaðurinn til að vinna risamót síðan Paul Lawrie vann í umspili á Carnoustie fyrir átta árum síðan.

„Ef ég hefði tapað eftir það sem gerðist á átjándu þá veit ég ekki hvort að ég hefði áhuga á því að spila golf aftur," sagði Harrington, sem spilaði lokahringinn á 67 höggum og endaði mótið á sjö höggum undir pari.

„Ég er búinn að þróast mikið sem kylfingur síðustu ár, en þegar ég varð atvinnumaður þá hefði ég verið ánægður að vera með í mótinu en að vera nefndur einn af þeim líklegu til að vinna mótið og að vinna mótið sannar það að ég er orðinn góður."

Fyrir Garcia, sem spilaði síðasta hringinn á 73 höggum, þá verður erfitt að kyngja þessari niðurstöðu. „Satt að segja þá finnst mér ég ekki hafa gert nein mistök. Ég sló ekki eitt lélegt högg í umspilinu og púttaði ótrúlega vel en þau duttu bara ekki. Ég ætti að skrifa bók um það hvernig á að slá ekkert lélegt högg en tapa samt."

Kylfingur.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×