Golf

Þrír deila efsta sæti í karlaflokki

Þeir sem voru ræstir út eftir hádegi í karlaflokki á fyrsta hring á Íslandsmótinu á Hvaleyrinni hafa ekki verið að ógna skori þeirra bestu sem kláruðu hringinn fyrr í dag. Ástæðan fyrir því er að hluta til sú að nokkur vindur hefur verið á vellinum eftir hádegi, en þeir sem fóru út í morgun fengu logn eða hæga norðan golu.

Þrír deila efsta sæti í karlaflokki, þeir Björgvin Sigurbergsson úr GK, Jóhannes Kristján Ármannsson úr GB og Örn Ævar Hjartarson úr GS, sem léku hringinn á 68 höggum, eða 3 höggum undir pari.

Kristján Þór Einarsson úr GKj og Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG deila fjórða sæti á 69 höggum og síðan kemur Björn Þór Hilmarsson úr GR á 70 höggum.  Davíð Jónsson úr GS lék á 71 höggi, eða pari. 

Heiðar Davíð Bragason úr GKj lék á einu höggi yfir pari vallar eins og þeir Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR, Björn Þór Arnarson úr GO, Ólafur Már Sigurðsson úr GR og Sigurþór Jónsson úr GK.

Kylfingur.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×