Erlent

Endeavour kveður Aðþjóðageimstöðina

Festar geimskutlunnar Endeavour við Alþjóðageimskutlunnar hafa verið leystar og innan skamms leggur ferjan af stað til jarðar, degi fyrr en áætlað var. Ástæða flýtingarinnar er fellibylurinn Dean. Vísindamenn Nasa óttast að rýma þurfi stjórnstöð ferjunnar í Houston þegar fellibylurinn skellur á Texas. Stefnt er að því að ferjan lendi í Flórída á þriðjudaginn, í stað miðvikudags.

Edeavour tengdist Alþjóðageimstöðinni þann 10. ágúst. Á þeim tíma hafa áhafnarmeðlimur ferjunnar haldið uppbyggingu stöðvarinnar áfram, skipt út biluðum snúðvísum og fyllt á ýmsar birgðar.

,

Tengdar fréttir

Endeavour tekst á loft

Mönnuð geimskutla, Endeavour, tókst á loft frá Florída rétt í þessu. Flugtakið virðist hafa gengið áfallalaust. För Endeavour er heitið til Alþjóða geimsstöðvarinnar þar sem byggingu hennar verður haldið áfram. Ráðgert er að ferðalagið taki 11 til 14 daga. Endeavour er á vegum Nasa. Þetta er önnur mannaða geimförin af fjórum sem Nasa hefur áætlað á árinu.

Skipt um óþéttan loka í Endeavour

Bandaríska geimferðastofnunin NASA tilkynnti á miðvikudaginn að skipta ætti um óþéttan loka í geimferjunni Endeavour. Áætlað er að skjóta ferjunni á loft næsta þriðjudag.

Heimför Endeavour mögulega flýtt

Heimför geimskutlunnar Endeavour verður að öllum líkindum flýtt vegna fellibylsins Dean sem ríður nú yfir Karabíska hafið. Ef svo færi myndi skutlan lenda á þriðjudaginn í stað miðvikudags í næstu viku.

Endeavour lögð af stað

Geimskutlan Endeavour er lögð af stað í 11 til 14 daga ferðalag til Alþjóðageimsstöðvarinnar. Skutlunni var skotið á loft frá Flórída kl: 22:36 að íslenskum tíma í gær. Geimskotið gekk áfallalaust.

Skemmdirnar á Endeavour minniháttar

Geimferðastofnun Bandaríkjanna telur skemmdirnar sem urðu á hitaskildi geimferjunnar Endeavour séu minniháttar vandamál sem líklega þarfnist ekki viðgerðar. Áhöfn ferjunnar mun þó rannsaka skemmdirnar betur í dag.

Áhöfn Endeavour telur ferjuna búna til lendingar

Áhafnarmeðlimir Endeavour-geimferjunnar eru handvissir um að skutla sín geti þotið innum lofthjúp jarðar áfallalaust þrátt fyrir hitateppi hennar hafi skemmst við lofttak. Stýrimaður ferjunnar lýsti þessu yfir í dag. Hann sagði að skemmdirnar væru lítilvægar.

Enn óvissa með Endeavour

Bandaríska geimferðastofnunin frestaði í gær fjórðu geimgöngu áhafnar geimferjunnar Endeavour vegna óvissu um hvort gera þyrfti við rifu á hitahlíf ferjunnar. Geimgangan átti að fara fram á morgun og fól í sér ýmiss önnur verkefni en mögulega viðgerð á geimferjunni. Göngunni hefur verið frestað fram á laugardag.

Geimgangan gekk vel

Skipt var um einn af fjórum snúðvísum í Alþjóðageimstöðinni í gær. Tveir áhafnarmeðlimir geimskutlunnar Endeavour, sem stödd er við stöðina, héldu í geimgöngu í gær og komu 272 kílógramma nýjum snúðvísi á sinn stað.

Allt að gerast um borð í Endeavour

Geimfarar um borð í geimskutlunni Endeavour eru lagðir af stað í aðra geimgöngu sína á Alþjóðageimstöðinni. Erindi þeirra er að skipta um einn af snúðvísum stöðvarinnar. Ráðgert er að geimgangan vari í sex og hálfa klukkustund. Fjórar geimgöngur eru áætlaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×