Erlent

Dean séður utan úr geimnum

Óli Tynes skrifar
Dean séður frá geimferjunni Endeavour.
Dean séður frá geimferjunni Endeavour.

Geimfarar um borð í geimferjunni Endeavour tóku einstakar myndir af fellibylnum Dean sem hefur valdið miklum usla á eyjum á Karíbahafi undanfarna daga. Heimferð ferjunnar hefur verið flýtt um 24 klukkustundir vegna bylsins sem þessa stundina stefnir á Mexíkó.

Endeavour er nú tengd við alþjóðlegu geimstöðina, á braut um jörðu. Bandaríska geimferðastofnunin hafði áhyggjur af skemmdum sem urðu á hitaskildi ferjunnar í flugtaki. Þar hafa menn þó komist að þeirri niðurstöðu að skemmdirnar séu ekki svo alvarlegar að ekki sé hægt að lenda henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×