Tónlist

Miðasala hefst á forhlustunartónleika Sprengjuhallarinnar

MYND/365

Sprengjuhöllin heldur forhlustunartónleika á tónleikastaðnum ORGAN í Hafnarstræti laugardaginn 1. september í tilefni af því að upptökum er að ljúka á fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar.

Miðasala á tónleikana hefst á morgun, miðvikudag, kl. 12:00 í verslunum Skífunnar, BT og á Midi.is. Miðaverð er 1000 krónur.

Áður en tónleikarnir byrja verður gestum boðið upp á hlusta á plötuna í heild sinni. Plötunni verður rennt tvisvar í gegnum hljóðkerfi ORGAN og hefst fyrst spilun klukkan 20:10. Þetta verður í eina skipti sem hægt verður að hlýða á plötuna í heild sinni þar til hún kemur út í október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.