Erlent

Sýndarbrúðkaup

Láta gefa sig saman bæði í raunveruleikanum og í sýndarveruleika
Láta gefa sig saman bæði í raunveruleikanum og í sýndarveruleika

Par lætur gefa sig saman í gegnum tölvu. Brátt mun fyrsta sýndarbrúðkaupið eiga sér stað í Los Angeles. Par sem er miklir aðdáendur tölvuleiksins EverQuest II ætlar að láta gefa sig saman bæði í raunveruleikanum og í sýndarveruleika.

Þau munu hafa tölvu meðferðis upp að altarinu og segja heitin við prestinn um leið og persónur tölvuleiksins gera slíkt hið sama. Tilvonandi hjónin segja ekki fullnægjandi að skiptast á heitunum sín á milli heldur verði tölvupersónurnar að vera með í athöfninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×