Bíó og sjónvarp

Lokasýning Dýranna í Hálsaskógi

Dýrin í Hálsaskógi
Dýrin í Hálsaskógi

Leikhópurinn Lotta hefur í sumar sýnt barnaleikritið sívinsæla, Dýrin í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner, undir berum himni víða um land. Nú er aðeins ein sýning eftir, í Elliðaárdalnum þann 29. ágúst klukkan 18.

Sýningin mun fara fram hvort sem sólin skín eða rigningin dynur. Fólk hvatt til að klæða sig eftir veðri og mæta með teppi til að sitja á og hlýja sér við.

Að sögn leikhópsins eru myndavélar velkomnar á sýningunni.

Miðapantanir og upplýsingar í síma 699-3993 eða á dyrinihalsaskogi@gmail.com






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.