Viðskipti erlent

Samruni Scania, Man og Volkswagen á salt

Peter Wallenberg (til hægri) ræðir hér við Carlos Menem, fyrrum forseta Argentínu, um vöruflutningabíla.
Peter Wallenberg (til hægri) ræðir hér við Carlos Menem, fyrrum forseta Argentínu, um vöruflutningabíla. Mynd/AFP

Sænski fjárfestirinn Peter Wallenberg hefur hætt við samruna sænska vöruflutningabílaframleiðandans Scania, MAN og hluta af þýska fyrirtækinu Volkswagen í bili. Gert hafði verið ráð fyrir að úr samrunanum yrði til nýr framleiðandi vöruflutningabíla.

Wallenberger á þriðjungshlut í Scania en krosseignarhald er í félögunum þremur.

Þýska útgáfa viðskiptablaðsins Financial Times hefur eftir ónafngreindum heimildamanni að ákveðið hefði verið að salta málið þar sem sala á hlut Wallenbergs til Þýskalands gæti skaðað mannorð hans í Svíþjóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×