Auglýsing Símans er ósmekkleg - Biskupsstofa Óli Tynes skrifar 4. september 2007 14:06
Ný auglýsing frá Símanum hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Verið er að auglýsa nýjan farsíma og talað um að hann breyti gangi sögunnar. Og það er sannarlega farið inn í söguna því inn í þessa auglýsingu er skeytt síðustu kvöldmáltíðinni og samskiptum Júdasar og Krists. Þeir tala saman í farsíma. Auglýsingin er birt bæði í sjónvarpi og dagblöðum. Mörgun finnst þetta sniðug auglýsing. Öðrum finnst hins vegar mjög óviðeigandi að flétta síðustu kvöldmáltíðina inn í auglýsingabrellu. Nokkrir sem fréttastofan hefur rætt við hafa jafnvel velt því fyrir sér hvort þetta sé ekki hreinlega guðlast. Halldór Reynisson hjá Biskupsstofu sagði í samtali við fréttastofuna að Biskupsstofa skipti sér alla jafna ekki af auglýsingum fyrirtækja. Því væri þó ekki að leyna að þeim þætti þessi auglýsing ósmekkleg. Síminn vonast væntanlega til þess að auglýsingin skili hagnaði. Það er spurning hvort, af þessu tilefni, einhver ryðst inn í þann Mammons rann og veltir um borðum. Það mun vera fordæmi fyrir því.
Innlent Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Heitir hættulegir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira