Innlent

Kreppu spáð

Guðjón Helgason skrifar

Breskir bankasérfræðingar spá bankakreppu í vikunni sem eigi sér ekki líka síðustu tuttugu ár. Bankar sem þurfi að endurfjármagna lendi í vandræðum. Hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands segir íslenska banka betur í stakk búna til að takast á við slíkt en þegar næddi um þá fyrir einu og hálfu ári.

Breska blaðið Sunday Times birtir í dag grein sem byggir á viðtölum við reynda menn í breska fjármálageiranum. Kreppur er spáð. Vanir sérfræðingar segjast ekki hafa séð það svartara í 20 ár.

Því er spáð að endurfjármögnun næstu viku - að mestu í gegnum Lundúnir - sem nemi rúmlega sjö þúsund milljörðum króna - verði til að valda vandræðum. Það sé nærri þúsund milljörðum minna en þegar vandræði urðu á mörkuðum í síðasta mánuði og síðan þá hafi fjárfestar og lánastofnanir farið að halda að sér höndum.

Miklar lækkanir urðu á hlutabréfum víðs vegar um heim vegna óróleika sem skapaðist þegar vanskil urðu á annars flokks húsnæðislánum í Bandaríkjunum. Þurftu helstu seðlabankar heims að dæla peningum inn á markaði til að viðhaldi eðlilegu fjárstreymi. Nú þegar hefur breski Seðlabankinn lýst því yfir að hann muni dæla allt að fimm hundruð og áttatíu milljörðum króna inn á markaði á næstu þremur vikum.

Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabanka Íslands, segir áhrifa þegar að gæta og óvíst hvað þau verði mikil um allan heim. Það sé ljóst að vandinn hverfi ekki eins og dögg fyrir sólu. Hann telur að áhættumat fjárfesta sé breytt.

Tryggvi segir íslenska banka betur í stakk búna að takast á við vandræði tengd þessu ein þeir voru þegar mest buldi á þeim fyrir einu og hálfu ári. Þeir hafi orðið að grípa til aðgerða þá og því hafi þeir gert breytingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×