Innlent

Hefnd úr hæstu hæðum ?

Óli Tynes skrifar

Hin umdeilda auglýsingu Símans, þar sem síðasta kvöldmáltíðin er sviðsett hefur verið afturkölluð. Ekki er það þó að kröfu sannkristinna heldur virðist í auglýsingunni sem bæði Jesús og Júdas séu viðskiptavinir Vodafone. Síminn er þarna að auglýsa nýjustu tegund af farsímum sínum, sem eru myndsímar með meiru. Og mikið rétt, það eru þarna myndir af Jesús og Júdasi. En undir myndunum má sjá glitta í merki Vodafone.

Linda Björk Waage, upplýsingafulltrúi Símans sagði að framleiðendur hefðu dregið auglýsinguna til baka til þess að laga hana, eins og gert væri með gallaðar vörur. Mikið hefði verið vandað til gerðar hennar, en eins og sjáist í þessu tilfelli sé nálaraugað ósköp smátt.

Svo verður hver að gera það upp við sjálfan sig hvort þetta voru mannleg mistök....eða inngrip að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×