Innlent

Siggi Hall kennir alþjóðasamskipti

Tveggja ára verkefni til að auka samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og lífsleikni fólks var hrundið af stað í morgun undir yfirskriftinni Mannauður - upphafið að nýrri framtíð.

Nafnið Mannauður er engin tilviljun og vísar í verkefnið Auður í krafti kvenna. Eða eins og sagt var í kynningu á verkefninu í morgun, við erum búin að fixera konurnar nóg - nú er komið að fyrirtækjunum og báðum kynjunum. Markmiðið er, sagði rektor Háskólans í Reykjavík, að blanda saman menntun og skemmtun, auka samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og síðan samkeppnishæfni og lífsleikni einstaklinga. Efla færni fólks í því sem talið er nauðsynlegt í alþjóðlegu umhverfi framtíðarinnar. Þetta verður gert með ýmsum og nýstárlegum hætti. Haldnir verða hádegisfyrirlestrar, námskeið, stundaðar rannsóknir og efnt til umræðu. Allt verður almenningi opið, ýmist ókeypis eða á hóflegu verði. Til dæmis um nýstárleikann verður Siggi Hall með kvöldverðarboð til að kenna færni í samskiptum á alþjóðlegum viðskiptafundum. Þá verður settur á fót háskóli fjölskyldunnar þar sem börn og fullorðnir fræðast saman. Fremstu sérfræðingar í leiðtogaþjálfun koma til landsins og fiðluleikari kennir mönnum að hugsa út fyrir kassann. Mannauður er samstarfsverkefni HR, Landsbankans, Deloitte, Morgunblaðsins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×