Körfubolti

Snæfell leiðir í hálfleik

Sigurður Þorvaldsson
Sigurður Þorvaldsson Mynd/AntonBrink
Snæfell hefur yfir gegn Njarðvík 44-36 í hálfleik í undanúrslitaviðureign liðanna í Powerade bikarnum í körfubolta. Hólmarar hafa verið yfir allan hálfleikinn og leiddu 29-20 eftir fyrsta leikhlutann.

Hörður Axel Vilhjálmsson er að spila sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík í kvöld og kom inn sem varamaður fyrir Sverrir Þór Sverrisson í öðrum leikhluta. Brenton Birmingham hefur verið allt í öllu í sóknarleik Njarðvíkur og er kominn með 10 stig og framherjinn Charleston Long er með 8 stig og 7 fráköst.

Hjá Snæfelli er Sigurður Þorvaldsson stigahæstur með 12 stig, Jón Jónsson með 10 og Justin Shouse hefur átt mjög góðan leik með 9 stig, 4 stoðsendingar og 4 fráköst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×