Saga Reykjavik Energy Invest er stutt en afar átakamikil síðustu daga. Miklar deilur spruttu upp innan borgarstjórnar vegna ákvörðunar um sameiningu REI og Geysir Green Energy. Farið hefur verið fram á að borgarstjóri og fulltrúi framsóknarflokks í borgarstjórn víki úr borgarstjórn vegna málsins. Stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur var látinn fjúka og borgarstjóri er sagður ljúga.
T Í M A L Í N A
27. mars 2007 - Stjórn Orkuveitunnar samþykkir að stofna hlutafélag um útrásarstarfsemi Orkuveitunnar. Guðlaugur Þór Þórðarson flytur tillöguna sem er samþykkt af öllum stjórnarmönnum. Stjórn REI skipuð stuttu síðar. Í henni sátu Björn Ársæll Pétursson stjórnarformaður, Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi framsóknarflokksins og Haukur Leósson stjórnarformaður OR. Stjórnarlaun eru 120 þúsund og 240 þúsund fyrir stjórnarformann.
2. júlí 2007 - Stjórn Orkuveitunnar samþykkir samhljóma að kaupa hlut Grindavíkur og Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja.
Haukur Leósson býður Birni Ársæli forstjórastól REI. Hann afþakkar ræður sig til Landsbankans í Hong Kong.
Ágúst/september 2007 - Guðmundur Þóroddsson forstjóri Orkuveitunnar tekur við forstjórastarfi REI í sjö mánuði og fær til þess launalaust leyfi frá forstjórastarfi sínu hjá OR. Stjórnin samþykkir að Hjörleifur B. Kvaran verði forstjóri OR á meðan. Guðmundur þarf að gegna starfi forstjóra REI í tvö ár til að fá að eiga hlut sinn í REI.
3. september 2007 - Bjarni Ármannsson fyrrverandi forstjóri Glitnis tekur við sem stjórnarformaður Reykjavik Energy invest. Björn Ársæll Pétursson víkur. Launakjör voru rædd með vitund borgarstjóra og Hjörleifur B. Kvaran handhafi hlutabréfa OR í REI samþykkti þau.
25 september 2007 - Rúnar Hreinsson fyrrverandi kosningastjóri Björns Inga er ráðinn verkefnastjóri hjá REI.
Formaður starfsmannafélags orkuveitunnar sendir stjórn REI bréf og biður um að starfsmenn fái að kaupa hlut í REI. Þeim voru boðin sömu kjör og öðrum hafði boðist.
Stjórn REI ákveður að nokkrir starfsmenn Orkuveitunnar fái að kaupa hluti á sérkjörum. Til hliðsjónar var listi yfir starfsmenn og beiðni þeirra um kaup.
3. október 2007 - Jón Diðrik Jónsson stjórnarmaður í Geysir Green Energy og samherji Bjarna Ármannssonar er ráðinn til REI með samskonar heimild og Bjarni um að kaupa hlut í fyrirtækinu á genginu 1,3. Jón er ráðinn af forstjóra eða stjórnaformanni og er ekki starfsmaður heldur ráðgjafi. Jón mun ekki hafa viljað koma að fyrirtækinu án þess að eiga hlut í því. Verkefni hans er tímabundið til áramóta, en hlutinn má hann ekki selja fyrr en eftir tvö ár.
3. október 2007 - Sameining REI og Geysir Green Energy tilkynnt á blaðamannafundi. Ákveðið að nýjir starfsmenn REI fái að kaupa hluti á 2,77 enda hafi virði fyrirtækisins aukist við sameiininguna. Rúnar Hreinsson, kosningastjóri Björns Inga Hrafnssonar er meðal kaupenda. Rúnar var ráðinn kynningarstjóri og á að "hanna atburði" í kringum gesti og á fundum. Bjarni Ármannsson eykur hlutafé sitt um milljarð.
5. október 2007 - Fulltrúar minnihlutans mótmæla hvernig staðið hefur verið að málum og boð til fundar um sameiningu félaganna er gagnrýnt.
5. október 2007 - Allir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks ganga á fund Geirs H. Haarde formanns flokksins og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns og greina frá óánægju með vinnubrögð borgarstjóra. Mikil ólga hafði verið innan borgarstjórnarflokksins meðal annars yfir því hvernig borgarstjóri stóð að kynningu málsins og ákvarðanatöku.
Borgarstjóri beinir tilmælum til Bjarna Ármannssonar að eitt gangi yfir alla í kaupum á hlutum í fyrirtækinu.
7. október 2007 - Stjórn REI tilkynnir að 11 útvaldir starfsmenn REI og Orkuveitunnar fái ekki að kaupa stóra hluti í REI á sérkjörum. Þeir fá að kaupa 300 þúsund krónur að nafnvirði, eins og aðrir starfsmenn REI og OR. Hlutabréfakaup Bjarna Ármannssonar stjórnarformanns og Jóns Diðriks Jónssonar ráðgjafa eru frágengin og verða ekki bakfærð
7. október 2007 - Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur lýsir því yfir að eðlilegast sé að Vilhjálmur og Björn Ingi víki úr borgarstjórn vegna vantrausts.
8. október 2007 - Svandís ákveður að kæra boðun eigendafundar í orkuveitunni þar sem REI og GGE voru sameinuð. Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður tekur málið að sér.
8. október 2007 - Sáttafundur hjá Sjálfstæðismönnum. Á blaðamannafundi er tilkynnt að hluturinn í REI verði seldur, trúnaðarbrestur hafi orðið milli borgarstjórnarfulltrúa og lykilstarfsmanna OR og að Haukur Leósson verði látinn víkja sem stjórnarformaður OR. Borgarstjóri sagðist ekki hafa vitað af kaupréttarsamningum nokkurra starfsmanna OR og REI.
8. október 2007 - Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingar í borgarstjórn undrast ákvörðun um að selja hlut OR í REI nú. Hluturinn gæti orðið tugmilljörðum verðmætari eftir nokkur ár og Reykvíkingar ættu að njóta þess.
8. október 2007 - Björn Ingi Hrafnsson undrast að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri hafi ekki vitað af kaupréttarsamningunum og bendir á að Haukur Leóson sé náinn samstarfsmaður Vilhjálms.
9. október 2007 - Sáttafundur borgarstjornarflokks Sjálfstæðismanna. Haukur Leósson rekinn og ákveðið selja hlut Orkuveitunnar í REI.
9. október 2007 - Svandís Svavarsdóttir fulltrúi VG í stjórn OR segir borgarstjóra ljúga um að hafa ekki vitað um kaupréttarsamningana. Þeir hafi verið lagðir fram á fundi stjórnar OR 3. október.
10. október 2007 - Borgarstjórnarfundur. Björn Ingi Hrafnsson og minnihluti borgarstjórnar sammála um að selja ekki hlut OR í REI. Sjálfstæðismenn vildu selja strax.
11. október 2007 - Umboðsmaður Alþingis fer fram á ýmsar upplýsingar um tilurð REI og sameiningu þess og OR. Upplýsingarnar snúast um meðferð valds sveitarstjórna sem eignaraðila að Orkuveitunni.
11. október 2007 - Borgarstjórnarmeirihluti fundar í Höfða um málefni REI. Björn Ingi Hrafnsson mætir ekki á fundinn.
11. október 2007 - Gísli Marteinn Baldursson segist ekki kannast við að meirihlutinn sé að springa
11. október 2007 - Björn Ingi Hrafnsson lýsir því yfir að meirihlutasamstarfi D og B sé lokið og myndaður hafi verið nýr meirihluti Framsóknarflokks, Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra. Dagur B. Eggertsson er nýr borgarstjóri nýja meirihlutans.
11. október 2007 - Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins heldur blaðamannafund að heimili Vilhjálms fráfarandi borgarstjóra. Björn Ingi harðlega gagnrýndur.
12. október 2007 - Í ljós kemur að OR samþykkti að veita REI forgangsrétt að öllum erlendum verkefnum sem OR kunni að bjóðast á næstu 20 árum.
12. október 2007 - Björn Ingi heldur tilfinningaþrunginn fund með Framsóknarmönnum þar sem hann útskýrir að bakland Vilhjálms hafi brostið og ekkert annað hafi verið í stöðunni. Alfreð Þorsteinsson fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarmanna segir Sjálfstæðismenn sjálfa hafa verið búna að koma borgarstjóra sínum fyrir kattarnef og gamli meirihlutinn hafi verið ónýtur.
13. október 2007 - Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson neitar að hafa haft upplýsingar um 20 ára samninginn.
13. október 2007 - Í fundargerð stjórnar og eigendafundar í OR frá 3. október, kemur fram að 5 stjórnarmenn samþykktu að Orkuveitan setti hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja inn í REI. Fulltrúi Vinstri grænna sat hjá.
13. október 2007 - Forystumenn innan Sjálfstæðisflokksins vilja láta kanna eignarhlut framsóknarmanna í REI.
13. október 2007 - Talið að eignir REI áttfaldist á næstu tveimur árum og verði á bilinu 180 til 300 milljarðar króna þegar félagið fer á markað árið 2009 ef áætlanir fyrirtækisins standast.
14. október 2007 - Björn Ingi segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafi verið byrjaðir í meirihlutaviðræðum við aðra flokka þegar REI málið stóð sem hæst. Hann hafi séð SMS sem sagði „Til í allt - án Villa"
15. október 2007 - Fundað um framtíð Hitaveitu Suðurnesja af helstu eigendum; Reykjanesbæ, GGE, OR og Hafnarfjarðarbæ. Ákveðið að bíða með ákvarðanir þar til komi í ljós hvernig málum REI vindur fram undir stjórn nýs meirihluta.
15. október 2007 - Bjarni Ármannsson, Haukur Leósson og Hjörleifur Kvaran senda frá sér greinargerð. Þar segir að Vilhjálmi hafi verið gerð grein fyrir 20 ára samningnum á fundi á heimili hans og hann haf lýst sig samþykkan samningnum.
15. október 2007 - Vilhjálmur segist ekki hafa séð minnisblað um 20 ára samninginn sem Bjarni og Haukur segjast hafa lagt fram á heimili hans. Bjarni staðhæfir að Vilhjálmi hafi verið afhent minnisblaðið.
Hér fyrir neðan má sjá fréttir um málið og myndasafn þar sem persónuleg tengsl helstu framámanna REI eru skýrð.
Heimildir: Vísir,Fréttablaðið, OR, REI, RUV og DV.