Erlent

Heiðursmorð á strúti

Óli Tynes skrifar
Tveir ungir Bandaríkjamenn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir að skjóta til bana strút sem hafði sparkað þeim um koll. Piltarnir voru þá að laumast í óleyfi yfir afgirtan strútabúgarð suður af San Francisco. Það sem þá sveið sárast var að kærustur þeirra voru með þeim þegar þetta gerðist. Og það setti óstöðvandi hlátur að stúlkunum. Strúturinn lét þær alveg í friði.

Þeim Timothy McKewitt (19) og Johathon Porter (21) þótti svo að heiðri sínum vegið að þeir fóru heim til sín og sóttu þar riffil og haglabyssu. Þeir skutu að minnsta kosti sjö skotum að dýrinu, sem drapst. Timothy og Jonathon voru dæmdir í fimm mánaða fangelsi, sem er svosem nógu slæmt.

En það sem þeim þykir sjálfsagt ekki skárra er að nú hlæja ekki bara kærusturnar að þeim, heldur öll sveitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×