Erlent

Bush vill frelsa fangana á Kúbu

Óli Tynes skrifar
George Bush vill að fangar á Kúbu verði látnir lausir.
George Bush vill að fangar á Kúbu verði látnir lausir.

George Bush sagði í ræðu í Miami í dag að senn sæi fyrir endann á stjórnartíð hins grimma einræðisherra á Kúbu. Castro er bæði gamall og veikur og því ekki óeðlilegt að búast við að hann safnist til feðra sinna á næstu áratugum eða svo. Castro er búinn að lifa ansi marga Bandaríkjaforseta sem hafa villjað hann feigan.

Forsetinn hafði mörg orð um þær breytingar sem alþjóðasamfélagið vildi sjá á Kúbu eftir Castro. Meðal annars sagði hann að þjóðir heims yrðu að krefjast þess að föngum á Kúbu yrði sleppt úr haldi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×