Erlent

Afganskur harmleikur

Óli Tynes skrifar
Sjálfsmorðsárásum hefur fjölgað í Afganistan.
Sjálfsmorðsárásum hefur fjölgað í Afganistan.

Afgönsk móðir og fjögur börn hennar létu lífið þegar hún reyndi að hindra son sinn í að gera sjálfsmorðssprengjuárás á erlenda hermenn í landinu. Talsmaður afganska innanríkisráðuneytisins segir að sonurinn hafi nýlega verið kominn heim úr Kóran-skóla í Pakistan.

Þegar móðir hans komst að því að hann ætlaði að gera sjálfsmorðsárás reyndi hún með valdi að hindra hann í að fara út af heimilinu.

Í átökunum sprakk sprengjubeltið sem hann hafði vafið um sig. Í sprengingunni fórst móðirinn, sprengjumaðurinn og þrjú systkini hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×