Viðskipti erlent

Afkoma Yahoo yfir væntingum

Jerry Yang, forstjóri og annar af stofnendum bandarísku netveitunnar Yahoo.
Jerry Yang, forstjóri og annar af stofnendum bandarísku netveitunnar Yahoo. Mynd/AFP

Hagnaður bandarísku netveitunnar Yahoo nam 151 milljón bandaríkjadala, jafnvirði 9,2 milljarða íslenskra króna, á þriðja árfjórðungi, sem er sjö milljón dölum minna en á sama tíma í fyrra. Fjárfestar voru engu að síður ánægðir með niðurstöðuna þar sem hagnaður á hlut var óbreyttur á milli ára, 11 sent á hlut. Gert hafði verið ráð fyrir þriggja senta samdrætti á milli ára.

Tekjur netveitunnar námu 1,77 dölum á tímabilinu, sem er tólf prósenta aukning á milli ára.

Þetta þykja sömuleiðis ágætar fréttir fyrir Yahoo, sem hefur átt í nokkru basli upp á síðkastið og lýsir sér meðal annars í því að Jerry Yang, annar af tveimur stofnendum fyrirtækisins, settist í forstjórastólinn á nýjan leik til að stýra skútunni sem hann stofnaði á betri brautir. Gengi bréfa í netveitunni lækkaði um 4,2 prósent við lokun viðskipta á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en stökk upp um níu prósent skömmu síðar í kjölfar birtingu afkomutalnanna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×