Erlent

Fáleikar með Danaprinsum

Óli Tynes skrifar
Friðrik krónprins og Jóakim bróðir hans.
Friðrik krónprins og Jóakim bróðir hans.

Danska Extra Bladet heldur því fram að kalt sé milli þeirra bræðra Friðriks krónprins og Jóakims. Blaðið segir að síðastliðin þrjú ár hafi þeir ekki hist nema það hafi verið nauðsynlegt vegna opinberra athafna. Það er mikil breyting frá árum áður þegar bræðurnir máttu ekki hvor af öðrum sjá.

Extra Bladet nefnir sem dæmi að alltaf þegar Friðrik keppti í siglingum hafi Jóakim verið þar og alltaf þegar Jóakim keppti í kappakstri var Friðrik þar. Það heyrir sögunni til. Þá vakti það sérstaka athygli fjölmiðla að þegar Jóakim tilkynnti um trúlofun sína í síðasta mánuði mættu hvorki Friðrik né Mary krónprinsessa í morgunverðarboð sem Jóakim hélt til þess að kynna fjölskyldurnar.

Orð sem hafa fallið í fréttaviðtölum þykja renna stoðum undir að fátt sé með þeim bræðrum. Hin franska Marie, kærasta Jóakims var þannig spurð hvort hún gæti eitthvað lært af Mary krónprinsessu. Hún svaraði: "Ég hef hitt hana, en ég þekki hana ekki svo vel að ég geti sagt hvort ég geti eitthvað lært af henni.

Friðrik krónprins sagði sjálfur um Marie; "Með tíð og tíma á mér sjálfsagt eftir að líka betur og betur við hana." Marie hefur verið kærasta Jóakims í tvö ár, en kunningsskapurinn er semsagt enginn.

Menn velta því auðvitað fyrir sér hvað gerðist. Hversvegna kólnaði svo milli prinsanna. Bent er á að fyrst hafi farið að bera á þessu fyrir þremur árum. Það var einmitt þegar Jóakim skildi við Alexöndru eiginkonu sína.

Vitað er að Friðrik líkaði mjög vel við Alexöndru og milli þeirra var góð vinátta. Hugsanlegt er talið að þangað megi rekja ósætti bræðranna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×