Innlent

Namm, namm

Líklega verður síld og kartöflur í matinn á einhverjum heimilum í Grundarfirði í kvöld. Þar er nú mokveiði af síld svo nærri landi að bátarnir geta tekið upp kartöflur í leiðinni.

Gunnar R. Hjartarson í Grundarfirði sagði okkur að þar sem hann sæti sæi hann þrjá stóra báta að veiðum 70 til 80 metra frá landi.

Veiði hefur verið ágæt utar undanfarna daga en nú lætur síldin hreint eins og hún hugsi sér að vaða á land. Gunnar segir að sjómennirnir séu ánægðir með aflann, þetta sé fyrirtaks síld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×