Viðskipti erlent

Líkur á milli lækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, er sagður íhuga vel næstu skref bankans.
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, er sagður íhuga vel næstu skref bankans.

Líkur hafa aukist til muna að bandaríski seðlabankinn lækki stýrivexti um allt að 50 punkta að loknum næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudag í næstu viku. Breska blaðið Times segir slök uppgjör fjármálafyrirtækja vestanhafs og áframhaldandi samdráttur á fasteignamarkaði þar í landi vísbendingu um næstu ákvörðun bankans.

Niðursveifla á hlutabréfamörkuðum víða um heim á rót að rekja til mikillar vanskilaaukningar á bandarískum fasteignalánamarkaði á þessu ári og lækkunar á fasteignaverði, sem fjármálaskýrendur segja að sé tilkomin vegna hárra stýrivaxta í Bandaríkjunum. Hætta sé á að neytendur haldi að sér höndum og geti það dregið úr hagvexti víða, ekki síst í Bandaríkjunum.

Seðlabanki Bandaríkjanna hefur brugðist við versnandi efnahagshorfum með ýmsum hætti, svo sem með því að veita hundruð milljörðum bandaríkjadala inn í hagkerfið og lækka bæði vexti á millibankalán og stýrivexti í síðasta mánuði.

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði fyrir stýrivaxtafund bankans í síðasta mánuði að bankinn myndi ekki lækka stýrivexti fyrr en verðbólga taki að hjaðna. Fjármálaskýrendur töldu hins vegar að efnahagshorfur til lengri tíma væri bankanum meira áhyggjuefni en verðbólgan og því muni hann fremur einbeita sér að því að lækka stýrivexti til að koma í veg fyrir að hagvöxtur dragist saman.

Stýrivexti í Bandaríkjunum standa nú í 4,75 prósentum. Gangi stýrivaxtaspáin eftir fara þeir niður í allt að 4,25 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×