Erlent

Fyrsta farþegaflug ofurþotu

Guðjón Helgason skrifar

Stærsta farþegaþota í heimi, Airbus A380, lenti í Sydney í Ástralíu í morgun eftir sögulegt flug frá Singapúr. Ekki mátti það seinna vera því framleiðslan hefur tafist um tvö ár og kostað marga starfsmenn Airbus vinnuna.

Þetta var fyrsta farþegaflug þessarar nýju ofurþotu. Airbus A380 er tveggja hæða og með fjóra hreyfla. Gólfpláss í henni er helmingi meira en í stærstu vélum sem hingað til hafa verið í notkun. Farþegar í þotum af þessari gerð geta flestir verið 555 sé henni skipt í þrjú farrými en rúmlega 200 fleiri ef farrýmið er aðeins eitt. Krá og fríhöfn eru meðal þess sem boðið er upp á í þotum sem þessum.

Þotunni var flogið af stað frá Síngapúr skömmu eftir miðnætti að íslenksum tíma og hún lenti á áttunda tímanum í Sydney í Ástralíu. 455 farþegar voru um borð. Flugmiðinn var dýr og höfðu sumir borgað mörg hundruð þúsund krónur til að fá að fara með í þetta sögulega flug. Sumir keyptu miða á alþjóðlega uppboðsvefnum eBay og ágóðinn af þeirri sölu fór til góðgerðarmála. 30 manna áhöfn var um borð í þotunni - þar á meðal 4 flugmenn.

Framleiðsla A380 þotunnar hefur verið höfuðverkur fyrir evrópska flugvélaframleiðandann Airbus. Flugfélagið Singapore Airlines fékk fyrstu ofurþotuna afhenta fimmtánda þessa mánaðar - nærri tveimur árum á eftir áætlun. Framleiðslan hefur farið margar milljónir bandaríkjadala fram úr áætlun og fyrirtækið þegar þurft að fækka starfsfólki til að mæta því. Næstu fjögur árin verður tíu þúsund manns sagt upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×