Orð Díönu eftir slysið: „Guð minn góður“ Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 25. október 2007 17:00 Björgunarmenn að störfum við Mercedes Benz bifreiðina í göngunum eftir slysið. MYND/AFP
Slökkviliðsmaður sem kom á slysstað í Alma göngunum í París strax eftir slysið sem tók líf Díönu prinsessu og Dody Fayed ástmanns hennar bar vitni fyrir dómi í dag. Hann sagði prinsessuna hafa endurtekið í sífellu orðin „Oh my God". Damian Dalby var í París ásamt bróður sínum og hópi vina þegar þeir komu að göngunum. Hann bar vitni í réttarrannsókninni í London í gegnum myndsendingu um gervihnött frá París. Hann sagði kviðdómendum hvernig hann hefði flýtt sér að flaki Mercedes Benz bifreiðarinnar þar sem ljósmyndarar höfðu safnast saman. Reykur hefði stigið upp frá bílnum og hann vildi aftengja rafgeyminn. Það hafi hann hins vegar ekki getað. Aðspurður að því hvort Díana hafi reynt að tala sagði hann; „Já hún sagði „oh my God, oh my God."" Dalby var einnig spurður hvort það væri rétt að þá hefði hann ekki kunnað ensku. Því játaði hann og sagði að það væri staðreyndin enn þann dag í dag. Á slysstað bað Dalby ferðamann á staðnum að segja lífverði Díönu að hreyfa sig ekki af því að sjúkralið væri á leiðinni. Ferðamaðurinn hefði sagt honum að hann hefði verið að elta bíl prinsessunnar sem hefði verið á miklum hraða. Dalby sagðist ennfremur hafa munað eftir ljósmyndara sem hefði kallað eftir að hann tók mynd af Díönu í bílnum; „Hún er á lífi." Síðan hafi hann reynt að ýta hinum ljósmyndurunum frá. Svo hafi virst sem hann hafi ekki viljað að hinir ljósmyndararnir tækju myndir af prinsessunni í þessu ástandi.
Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Innlent Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Fleiri fréttir Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Sjá meira