Viðskipti erlent

Bandaríkjadalur aldrei lægri gagnvart evru

Evrur, sem hafa aldrei verið dýrari fyrir Bandaríkjamenn.
Evrur, sem hafa aldrei verið dýrari fyrir Bandaríkjamenn.

Bilið á milli bandaríkjadals og evru jókst í dag þegar dalur lækkaði í verði en gengismunur myntanna hefur aldrei verið meiri. Helsti orsakavaldurinn eru auknar væntingar að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í næstu viku.

Fyrir hverja evru fengust 1,4375 bandaríkjadalir í morgun. Munurinn hefur minnkað lítillega eftir því sem liðið hefur á daginn.

Stýrivextir í Bandaríkjunum standa í 5,75 prósentum. Flestir fjármálaskýrendur telja líkur á að seðlabankinn lækki vextina um 25 punkta í næstu viku. Bjartsýnustu menn telja hins vegar auknar líkur á að vextirnir muni fara niður um 50 punkta og vísa til dræmra uppgjöra fjármálafyrirtækja í Bandríkjunum síðustu vikur.

Fjármálaskýrendur segja lægri stýrivexti hins vegar geta blásið í einkaneyslu sem aftur getur aukið við verðbólguna. Seðlabanki Bandaríkjanna hafði fram að óróleikatímabilinu síðla sumar neitað að hrófla við stýrivöxtum uns verðbólga hjaðnaði. Að loknum vaxtafundi bankans í síðasta mánuði var hins vegar annað hljóð komið í strokkinn enda meiri líkur en meiri á því að minni hagvöxtur í Bandaríkjunum gæti dregið úr hagvexti á heimsvísu. Var því afráðið að lækka vextina um 50 punkta, sem þó kom á óvart.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×