Eyjólfur hættur 27. október 2007 17:36 AFP
Stjórn Knattspyrnusamband Íslands samþykkti á fundi sínum í dag, 27. október, að endurnýja ekki ráðningarsamning við Eyjólf Sverrisson, þjálfara A-landsliðs karla í knattspyrnu sem rennur út þann 31. október næstkomandi. Eyjólfur mun því ekki stjórna liði Íslands í leik gegn Danmörku þann 21. nóvember næstkomandi og enn hefur ekki verið gefið út hver það verður sem fenginn verður til að stýra liðinu í lokaleik sínum í undankeppni EM. Árangur landsliðsins hefur verið upp og ofan undir stjórn Eyjólfs en síðasti leikur hans við stjórnvölinn var háðlegt tap liðsins gegn Liechtenstein á útivelli á dögunum. Í frétt sem birtist hér á Vísi í gær var greint frá því hvernig Eyjólfur fór þess á leit við Eið Smára Guðjohnsen að hann afsalaði sér fyrirliðastöðunni hjá landsliðinu fyrir nokkru - en gekk ekki á eftir því þegar Eiður neitaði að tilkynna það sjálfur. Þá hefur verið orðrómur uppi um agaleysi í herbúðum íslenska landsliðsins. Íslenska landsliðið vann aðeins tvo leiki undir stjórn Eyjólfs og komu báðir sigrarnir gegn Norður-Írum í undankeppni EM. Liðið spilaði 14 leiki undir hans stjórn, vann 2, gerði 4 jafntefli og tapaði 8. Logi Ólafsson, fyrrum landsliðsþjálfari, segir þessi tíðindi ekki koma sér mikið á óvart, en furðar sig á tímasetningunni. "Þessi ákvörðun KSÍ er að mínu mati skiljanleg, en ég hefði þó haldið að hann fengi tækifæri til að klára þetta mót og stýra liðinu í síðasta leiknum í keppninni. Þó ekki væri nema til að leyfa honum að klára þetta með sóma," sagði Logi, en Eyjólfur verður að sætta sig við það að síðasti leikur hans með landsliðið hafi verið 3-0 niðurlæging í Liechtenstein.
Mest lesið Leik lokið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Fótbolti Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Fótbolti Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Handbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Handbolti Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Fór holu í höggi yfir húsið sitt Golf Leggja niður störf og föst laun stórmeistara Sport Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Fótbolti Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Sjá meira