Viðskipti erlent

Fjárfestar bíða ákvörðunar bandaríska seðlabankans

Hlutabréf fóru niður á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Fjárfestar bíða vaxtaákvörðunar bandaríska seðlabankans sem verður tilkynnt á morgun.
Hlutabréf fóru niður á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Fjárfestar bíða vaxtaákvörðunar bandaríska seðlabankans sem verður tilkynnt á morgun. Mynd/AP

Gengi helstu hlutabréfavísitalna lækkaði er nær dró lokun viðskipta á bandarískum fjármálamörkuðum í dag. Nokkrir þættir skýra lækkunina en fjáfestar þykja bjartsýnir á að bankastjórn seðlabanka Bandaríkjanna tilkynni um 25 punkta lækkun stýrivaxta á morgun að loknum tveggja daga vaxtaákvörðunarfundi, sem hófst í dag.

Undir lok síðasta mánaðar reiknuðu flestir með jafn mikilli lækkun og reiknað er með að líti dagsins ljós á morgun. Bankastjórnin kom hins vegar flestum á óvart og lækkaði vextina um hálft prósentustig, 25 punktum meira en flestir höfðu spáð.

Fjármálaskýrendur hafa reynt að rýna í rit og ræður bankastjórnar seðlabankans upp á síðkastið til að geta til um ákvörðunina sem verður kunngjörð á morgun. Talið er að vísbendingar séu uppi um áframhaldandi þrengingar á fasteignamarkaði sem getið dregið úr hagvexti þótt það þýði ekki að samdráttarskeið sé yfirvofandi vestanhafs, að sögn Associated Press.

Aðrir benda hins vegar á að lækkun vaxta bjóði hættunni heim. Þannig geti gengi bandaríkjadals lækkað enn frekar gagnvart öðrum gjaldmiðlum og einkaneysla aukist sem geti leitt til aukinnar verðbólgu.

Dow Jones-hlutabréfavísitalan lækkaði um 0,56 prósent í dag og stendur vísitalan í 13.792,47 stigum. Nasdaq-vísitalan hækkaði hins vegar einungis um 0,03 prósent og stendur hún í 2.816,71 stigi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×