Erlent

Ekki gera það í flugvélunum okkar

Óli Tynes skrifar
Kampavín og tvíbreitt rúm, en engann dónaskap takk.
Kampavín og tvíbreitt rúm, en engann dónaskap takk.

Singapore Airlines biður farþega sína um að stunda ekki kynlíf í hinum risavöxnu Airbus 380 vélum sem það hefur tekið í sína þjónustu, fyrst flugfélaga. Um borð í þessum vélum eru tólf tveggja manna svítur og í svítunum eru tvíbreið rúm.

Talsmaður flugfélagsins segir að svíturnar séu hvorki hljóðeinangraðar né algerlega innsiglaðar. Því eru svítugestir beðnir að haga sér þannig að þeir angri ekki aðra farþega, eða áhöfnina.

Tony og Julie Elwood voru ekki hrifin af þessum tilmælum; "Þeir selja þér tveggja manna herbergi með tvíbreiðu rúmi og ómældu kampavíni. Og segja svo að þú megir ekki gera það sem er eðlilegt í framhaldinu?"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×