Erlent

Mannskæð hópslagsmál kvenna

Óli Tynes skrifar
Los Angeles.
Los Angeles.

Ófrísk kona beið bana og tvær aðrar slösuðust alvarlega í hópslagsmálum þrjátíu ungra kvenna í Los Angeles í gær. Slagsmálin hófust síðdegis á bílastæði lágvöruverslunar. Þaðan bárust þau yfir á bensínstöð. Þar stökk ein konan upp í bíl sinn og keyrði á fullri ferð á þrjá andstæðingana.

Ein þeirra var gengin átta mánuði og hún beið samstundis bana þegar hún var klemmd á milli bílsins og annars bíls. Hinar tvær slösuðust mikið og er búist við að þurfi að taka fótinn af annarri þeirra.

Lögreglan segir ekki ljóst hvað hafi valdið þessum deilum. Svo virðist sem tveir andstæðir hópar hafi ákveðið að hittast á bílastæðinu og gera þar út um mál sín. Lögreglan segir að svona heiftúðug hópslagsmál kvenna séu mjög sjaldgæf....jafnvel í Los Angeles.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×