Erlent

Það má víst segja negri

Óli Tynes skrifar
Lögreglustjórinn í Tromsö, í Noregi, hefur verið gagnrýndur fyrir að segja mönnum sínum að það sé í lagi að nota orðið negri. Truls Fyhn blæs á þá gagnrýni.

Hann var kærður til eftirlitsnefndar með málefnum lögreglunnar. Þar var hann sýknaður af rasisma. Nefndin sagði þó að lögreglan eigi ekki að nota slík orð, því það geti veikt traust hennar.

Fyhn er ekki sammála þeirri gagnrýni. Hann segir að það sé ekki hlutverk eftirlitsnefndarinnar að vera siðapostuli. Það vilji hann skoða betur. Umfram það vill hann ekki tjá sig. Ljóst er af þessu að það er ekki bara á Íslandi sem fólk á í vandræðum með að finna orð yfir litaraft mannkynsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×