Sakfelldur fyrir morðið á Gísla Þorkelssyni Guðjón Helgason skrifar 12. nóvember 2007 18:30
Willie Theron, sem ákærður var fyrir morðið á Gísla Þorkelssyni í Suður-Afríku í maí 2005 var sakfelldur fyrir ódæðið fyrir dómi í Jóhannesarborg í dag. Theron hefur neitað sök en samverkakona hans - Desiree Oberholzer, játaði aðild sína og hlaut tuttugu ára fangelsisdóm í fyrra. Við sakfellingu nú er byggt á vitnisburði Oberholzer sem segir að Theron hafi skotið Gísla í höfuðið. Krufningarskýrsla styður við lýsingar hennar. Theron var einnig sakfelldur fyrir að hafa stolið bifreið Gísla, að hafa falsað skjöl til að stela fé af honum og einnig fyrir ólöglega vopnaeign. Theron og Oberholzer ætluðu að komast yfir fé Gísla sem hafði búið í Suður-Afríku um margra ára skeið og stundað þar viðskipti. Þau sóttu hann á flugvöllinn í Jóhannesarborg við heimkomu frá Bandaríkjunum. Ætlunin var að myrða hann og fela líkið þannig að talið yrði að hann hefði aldrei snúið aftur frá Bandaríkjunum. Líkið fannst um einum og hálfu mánuði eftir ódæðið - steypt í ruslatunnu. Hendrik Johannes Breedt, sem fann líkið, var í dag sýknaður af aðild að morðinu en sakfelldur fyrir vopnaeign. Eiginkona Therons, Linda, var sakfelld fyrir aðild að fjársvikum og einnig annar maður - Andre Koekemoer. Ekkert þeirra þriggja var talið hafa átt beina aðild að morðinu. Dómur yfir Theron verður kveðinn upp á morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Innlent Joe Biden með Covid Erlent Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Innlent Gekk berserksgang með öskrum og ólátum Innlent Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Innlent Hefja viðgerðir þó það gæti gosið á næstu dögum eða vikum Innlent Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Innlent Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Erlent Samfélagið þurfi á börnum að halda Innlent Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Innlent Fleiri fréttir Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Joe Biden með Covid Biden leggur lokahönd á tillögur að breytingum á hæstarétti Bretar samþykkja sölu dýrafóðurs úr ræktaðri kjötvöru Eitraði fyrir sjálfri sér og ferðafélögum sínum með blásýru Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs Íranir hafna aðild að banatilræðinu Ekkert nema ást og aðdáun á landsþingi Repúblikana Valið á Vance fyrirboði einangrunarhyggju í utanríkismálum Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar Vonar að árásin gegn Trump veki Bandaríkjamenn Hver er J.D. Vance? Pattstaða í Frakklandi Segja Musk hyggjast styrkja Trump um 45 milljónir dala á mánuði „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Ástand hinna særðu sagt stöðugt Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Sjá meira