Erlent

Umferðaröngþveiti um allt Frakkland

Guðjón Helgason skrifar
Troðið er í þeim lestum sem þó ganga í Frakklandi.
Troðið er í þeim lestum sem þó ganga í Frakklandi. MYND/AP

Samgöngukerfi Frakklands er lamað annan daginn í röð vegna verkfalls hjá starfsmönnum almenningssamgöngufyrirtækja. Umferðaröngþveiti er mikið og kannanir sýna að meirihluti Frakka hefur enga samúð með þeim sem lagt hafa niður vinnu.

Vegna verkfallsins hafa margir Frakkar þurft að fresta löngu skipulögðum ferðum milli landshluta og Parísarbúar orðið að ganga eða hjóla til vinnu - sem þykir ekki vænlegt í borginni.

Innan við fjórðungur allra lesta í Frakklandi ganga í dag - níutíu af sjö hundruð hraðlestum og aðeins ein af hverjum fimm neðanjarðarlestum í París. Fimmtán strætisvagnar af hverjum hundrað ganga.

Deilt er um þá ákvörðun Sarkozys Frakklandsforseta að skerða eftirlaunagreiðslur með nýrri lagasetningu. Vonir kviknuðu um að máli væri að leysast í gær þegar forsetinn sagði forsendur fyrir viðræðum hafa komið fram. Einhver verkalýðsfélög vildu þó ekki hefja viðræðru og því er verkfallið enn í gildi hjá mörgum þeirra.

Óvíst er hvort starfsmenn hjá gas- og rafmagnsveitum halda verkfalli sínu áfram mikið lengur en þeir hafa einnig lagt niður vinnu af sömu ástæðu og lestarstjórar og strætisvagnabílstjórar. Búist er við að fleiri starfsstéttir hjá hinu opinbera í Frakklandi leggi niður vinnu á næstu vikum - og því erfiðr tíma framundan hjá Sarkozy. Hann þarf þó ekki að örvænta enn sem komið er. Kannanir sýna að meirihluti almennings styður aðgerðir hans og bölvar verkfallinu. Það getur þó breyst dragist það á langinn.

Síðast þegar frönsk ríkisstjórn reyndi að breyta ákvæðum í eftirlaunalögum opinberra starfsmanna 1995 logaði allt í verkföllum í þrjár vikur og neyddist Chirac - þáverandi forseti - til að breyta áæltunum sínum þó stuðningur við hann hafi verið mikill í fyrstu.

Lestarstjórar hafa einnig lagt niður vinnu í Þýskalandi í dag vegna þess að viðræður um launahækkanir hafa siglt í strand. Áætlað er að verkfallið standi í minnst tvo sólahringa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×