Erlent

Morðið á Dando endurskoðað - Jakob Frímann fagnar

Óli Tynes skrifar
Barry George.
Barry George.
Þrír æðstu dómarar Bretlands hafa fallist á að taka aftur upp málið gegn Barry George sem var fangelsaður fyrir morðið á Jill Dando, kynni hjá BBC sjónvarpsstöðinni. Dando var skotin til bana á tröppunum að húsi sínu árið 1999. „Þetta eru góðar fréttir," segir Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður.

Lögmaður Barrys sagði fyrir áfrýjunardómstólnum að sönnunargögn gegn honum hefðu verið ófullnægjandi. Meðal annars hefði verið lögð of mikil áhersla á púðurleifar sem fundust í vasa á yfirhöfn hans. Púðurleifarnar voru aðeins einn þúsundasti úr þumlungi að stærð.

Dómsforsetinn, Philips lávarður, var sama sinnis. Hann sagði að það væri alveg jafn líklegt og ekki að púðurögnin hefði verið frá einhverju öðru en byssu. Hann sagði einnig að dómurinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að ef kviðdóminum hefði verið gerð grein fyrir þessu væri alls ekki víst að Barry hefði verið sakfelldur.

Barry George er nú 47 ára gamall. Hann á góða íslenska kunningja sem alltaf hafa verið sannfærðir um sakleysi hans. Einn þeirra er Jakob Frímann Magnússon. Hann var í hópi Íslendinga sem sóttu kaffihús í Lundúnum á þessum árum þar sem Barry var einskonar vikapiltur.

„Það var eindóma álit okkar allra að það væri útilokað að Barry hefði framið þennan verknað," sagði Jakob Frímann í samtali við Vísi. „Hann var einn af okkar smærri bræðrum, það sem hefði verið kallað þroskaheftur á árum áður.

Barry var mesta gæðablóð og það er af og frá að honum hefði dottið í hug að gera nokkurri manneskju mein. Ég er mjög feginn að heyra að mál hans verði tekið upp aftur. Ég vona að í þetta skipti standi breska dómskerfið sig og að Barry blessaður geti aftur frjálst um höfuð strokið."

Ekki hefur verið ákveðið hvenær ný réttarhöld fara fram en þangað til verður Barry George geymdur á bak við lás og slá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×