Erlent

Komdu Skjalda, flýjum

Óli Tynes skrifar
"Flýýýýýjjum."
"Flýýýýýjjum."

Hvað gera bandarískar kýr þegar gripaflutningabíllinn þeirra stoppar fyrir framan McDonalds veitingastað við þjóðveginn.

Og bílstjórinn fer inn til þess að fá sér safaríkan hamborgara úr ekta nautakjöti?

Þær stinga auðvitað af.

Enginn veit hvernig bakhleri flutningabílsins opnaðist. En þegar bílstjórinn kom út aftur voru kýrnar horfnar.

Það tók margar klukkustundir að finna þær aftur og smala þeim upp á pallinn. Margir lögregluþjónar tóku þátt í leitinni og smölunini.

Einum þeirra þótti augljóst hvað hefði gerst; "Þeim hefur ekki litist á framtíðina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×