Viðskipti erlent

Vilja koma í veg fyrir aðra undirmálslánakrísu

Hús til sölu í Bandaríkjunum. Bandaríkjaþing hefur samþykkt frumvarp sem felur í sér hertara eftirlit með fasteignalánafyrirtækjum.
Hús til sölu í Bandaríkjunum. Bandaríkjaþing hefur samþykkt frumvarp sem felur í sér hertara eftirlit með fasteignalánafyrirtækjum. Mynd/AFP

Bandarískir þingmenn hafa samþykkt frumvarp sem felur í sér hert eftirlit með bandarískum fasteignalánafyrirtækjum með það fyrir augum að koma í veg fyrir að fjármálakrísa í tengslum við undirmálslán vestanhafs endurtaki sig.

Rót krísunnar liggur í auknum vanskilum á svokölluðum undirmálslánum, sem veitt eru einstaklingum með lélegt lánshæfi og litla greiðslugetu. Þau fylgja stýrivaxtastigi bandaríska seðlabankans, sem þýðir að fyrir um þremur árum voru vextirnir afar lágir en hafa farið stighækkandi í samræmi við vaxtaþróun bankans. Af þessum sökum þykja þau afar áhættusöm og þung í vöfum fyrir einstaklinga með lítið umleikis. Lækkun stýrivaxta vestanhafs upp á síðkastið hefur ekki síst falist í því að gera einstaklingum sem þessum auðveldara um vik að greiða af lánum sínum.

Þá hefur spilað inn í kólnun á fasteignamarkaði í Bandaríkjunum sem hefur hægt með á veltu með fasteignir og lækkun verðs.

Í frumvarpinu kemur meðal annars fram að útlánareglur fyrirtækjanna eru hertar til muna og þurfa þau að tryggja að lántakendur geti greitt af lánum sínum.

Bandarísk fasteignalánafyrirtæki hafa gagnrýnt frumvarpið og segja það geta bæði komið illa niður á fyrirtækjunum auk þess sem það komi í veg fyrir að einstaklingar með litla greiðslugetu geti keypt sér húsnæði.

Frumvarpið hefur enn ekki verið lagt fyrir öldungadeild bandaríska þingsins en breska ríkisútvarpið hefur eftir bandarískum fjölmiðlum að líklega muni það sæta harðri gagnrýni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×