500 hafa farist Guðjón Helgason skrifar 16. nóvember 2007 12:26
Að minnsta kosti 500 manns létu lífið þegar fellibylur skall á suðurhluta Bangladess í gær. Tré rifnuðu upp með rótum og heilu þorpin voru jöfnuð við jörðu í veðurofsanum. Stjórnvöld í Bangladess óttast að látnir reynist fleiri þar sem óvist sé hvort einhverjir hafi týnt lífi á svæðum sem einagruðust í óveðrinu. 650 þúsund Bangladessar voru fluttir frá heimilum sínum og í sérstök neyðarskýli áður en stormurinn gekk á land en sumir urðu eftir. Fjölmörg neyðarskýli voru byggð í Bangladess á áttunda áratug síðustu aldar eftir að fellibylur varð hálfri milljón manns að bana 1970. Stormurinn skildi eftir sig slóð eyðileggingar og er talið að vindhraðinn hafi náð tæpum sextíu og sjö metrum á sekúndu. Þá er tuga fiskimanna saknað. Þeir létu stormviðvaranir sem vind um eyru þjóta og fóru ekki í land í gær. Talsmenn Rauða hálfmánans í Bangladess segja að í það minnsta þrjú þorp á ströndinni séu einfaldlega horfin eftir að fellibylurinn gekk yfir en honum fylgdi fimm metra há flóðbylgja. Í höfuðborg landsins Dhaka sögðu sjónarvottar að óveðrið hefði leikið byggingar grátt auk þess sem rafmagns- og vatnsleiðslur hafi farið í sundur.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Innlent Joe Biden með Covid Erlent Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Innlent Gekk berserksgang með öskrum og ólátum Innlent Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Innlent Hefja viðgerðir þó það gæti gosið á næstu dögum eða vikum Innlent Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Erlent Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Innlent Met slegið í fjölda kaupsamninga vegna uppkaupa Þórkötlu Innlent Samfélagið þurfi á börnum að halda Innlent Fleiri fréttir Vissu af árásarmanninnum en týndu honum í fjöldanum Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Joe Biden með Covid Biden leggur lokahönd á tillögur að breytingum á hæstarétti Bretar samþykkja sölu dýrafóðurs úr ræktaðri kjötvöru Eitraði fyrir sjálfri sér og ferðafélögum sínum með blásýru Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs Íranir hafna aðild að banatilræðinu Ekkert nema ást og aðdáun á landsþingi Repúblikana Valið á Vance fyrirboði einangrunarhyggju í utanríkismálum Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar Vonar að árásin gegn Trump veki Bandaríkjamenn Hver er J.D. Vance? Pattstaða í Frakklandi Segja Musk hyggjast styrkja Trump um 45 milljónir dala á mánuði „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Ástand hinna særðu sagt stöðugt Sjá meira