Golf

Birgir Leifur á tveimur höggum undir pari í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson stendur í ströngu þessa dagana.
Birgir Leifur Hafþórsson stendur í ströngu þessa dagana. Nordic Photos / Getty Images

Birgir Leifur Hafþórsson stendur vel að vígi á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðinni en hann lék á tveimur höggum undir pari í dag, samtals 70 höggum.

Í dag lék hann á gamla vellinum á svæði San Roque-klúbbsins. Hann lék einnig á gamla vellinum fyrsta keppnisdaginn þegar hann lék á einu höggi undir pari.

Birgir Leifur hefur leikið samtals á fjórum höggum undir pari (284 högg) og er í kringum 16.-19. sæti. Þrjátíu efstu kylfingarnir eftir sex hringi tryggja sér á endanum þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.

Hann er einnig öruggur um að komast í gegnum niðurskurðinn og leikur hann því áfram á síðustu tveimur keppnisdögunum. 

Fylgst var með gangi mála í textalýsingu hér á Vísi.

11.05

Þegar við mætum til leiks hér á Vísi hefur Birgir Leifur þegar lokið við fyrstu níu holurnar í dag. Honum hefur gengið glimrandi vel, fengið einn fugl og átta pör.

Hann hefur engin stór mistök gert eins og sést á skorinu hans. Hann hefur oftast náð að pútta fyrir fugli en aldrei þurft að bjarga parinu fyrir horn.

Sem stendur er hann í 16.-25. sæti á mótinu og heldur svo sannarlega sínu striki.

11.16

Enn og aftur var Birgir Leifur óheppinn að ná ekki fuglinum en tryggði þess í stað öruggt par.

11.21

Annar fugl dagsins kominn en það gerðist á elleftu holu sem er par fjórir. Birgir Leifur kom boltanum inn á flöt í tveimur höggum og setti boltann svo niður í fyrsta pútti.

11.27

Eins og svo oft áður í dag var Birgir Leifur nálægt því að pútta fyrir fugli en tryggði í staðinn öruggt par á tólftu holu.

En nú ber heimildum Vísis ekki saman. Kylfingur.is sagði að Birgir Leifur fékk par á 10. holu en samkvæmt heimasíðunni europeantour.com fékk hann fugl á þeirri holu.

Vonandi fæst rétt skor staðfest innan tíðar.

11.46

Par á fjórtándu og Birgir Leifur heldur sínu striki. Enn hefur ekki fengist rétt skor á tíundu holu staðfest.

12.00

Annað par, í þetta skiptið á par þrjú holu. Birgir Leifur púttaði fyrir fugli en tryggði parið.

12.07

Öruggt par á fimmtándu. Það hefur nú verið staðfest að Birgir Leifur fékk par á tíundu holu, rétt eins og segir á kylfingur.is. Hann er í kringum 13.-20. sæti.

12.23

Þá kom fyrsti skolli dagsins - á sextándu braut sem er par þrjú. Birgir Leifur þurfti tvö högg til að komast inn á flöt og svo tvípútt til að setja niður.

12.47

Birgir Leifur bætir strax fyrir skollann með fugli á sautjándu holu sem er par fimm. Hann fór inn á flöt í þremur höggum og setti niður í fyrsta pútti.

12.56

Birgir Leifur klárar síðustu holuna á öruggu pari. Þrír fuglar í dag og einn skolli, góður hringur hjá Birgi Leifi.

Fylgst er með gangi mála, holu fyrir holu, á kylfingur.is.

Fjórði keppnisdagur: tveir undir pari

1. braut: Par 4 (366 metri) - 4 högg (par)

2. braut: Par 4 (419 metrar) - 4 högg (par)

3. braut: Par 3 (155 metrar) - 3 högg (par)

4. braut: Par 4 (346 metrar) - 4 högg (par)

5. braut: Par 5 (480 metrar) - 4 högg (fugl)

6. braut: Par 4 (410 metrar) - 4 högg (par)

7. braut: Par 3 (192 metrar) - 3 högg (par)

8. braut: Par 4 (404 metrar) - 4 högg (par)

9. braut: Par 5 (448 metri) - 5 högg (par)

Fyrri níu: (Par 36) 35 högg (einn undir pari)

10. braut: Par 5 (482 metrar) - 5 högg (par)

11. braut: Par 4 (405 metrar) - 3 högg (fugl)

12. braut: Par 4 (370 metrar) - 4 högg (par)

13. braut: Par 4 (412 metri) - 4 högg (par)

14. braut: Par 3 (170 metrar) - 3 högg (par)

15. braut: Par 4 (327 metrar) - 4 högg (par)

16. braut: Par 3 (189 metrar) - 4 högg (skolli)

17. braut: Par 5 (519 metrar) - 4 högg (fugl)

18. braut: Par 4 (319 metrar) - 4 högg (par)

Seinni níu: (Par 36) 35 högg (einn undir pari)

Fyrsti keppnisdagur: 71 högg (einn undir pari vallarins)

Annar keppnisdagur: 70 högg (tveimur undir pari vallarins)

Þriðji keppnisdagur: 73 högg (einn yfir pari vallarins)

Samtals: fjórir undir pari (16.-19. sæti)

Alls hófu 156 kylfingar leik á fyrsta hring en þeir sem lenda í efstu 30 sætunum eftir sex hringi fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×