Golf

Birgir Leifur: Fyrsta markmiðinu náð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/Elísabet

Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur sagðist í samtali við Vísi vera afar sáttur við sína stöðu á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi.

Hann spilaði á 70 höggum í dag á gamla vellinum á San Roque á Spáni í dag og er í 19.-24. sæti eftir fjórða keppnisdaginn af sex. Hann komst því örugglega í gegnum niðurskurðinn en 70 kylfingar fá að keppa á síðustu tveimur dögunum um þau 30 sæti sem laus eru á mótaröð næsta árs.

„Þetta gekk mjög vel í dag og er ég mjög ánægður," sagði Birgir Leifur sem fékk þrjá fugla í dag og aðeins einn skolla. Oftar en ekki var hann að pútta fyrir fugli. „Það hefði auðvitað verið kærkomið að fá fleiri fugla en þeir verða bara að bíða betri tíma. En þetta var mjög þægilegur hringur í dag."

Birgir Leifur segist vera sáttur við sína stöðu í mótinu. „Fyrsta markmiðið var að komast í gegnum niðurskurðinn og gott að því hefur verið náð. Nú verð ég bara að halda áfram á sömu braut og spila áfram af sama stöðugleika."

Hann var þó ekki ánægður með spilamennsku sína í gær er hann lék á einu höggi yfir pari á nýja vellinum. „Það var svolítið basl. En ég náði þó að halda mér inn í myndinni og spilaði engu frá mér. Ég breytti þó ekkert um leikstíl í dag enda koma stundum bara svona dagar. Það er margt sem getur gerst og maður þarf bara að halda sér á tánum."

Á morgun spilar Birgir Leifur aftur á gamla vellinum og svo lokahringinn á nýja vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×